El Carretero

Ushuaia – Endimork alheimsins

Posted in Blogroll by haukur on janúar 10, 2009

Oft er talad um ad Bolungarvìk sè à hjara veraldar, en thad er aldeilis ekki rètt thvì ad Ushuaia, 60.000 manna baer ì sudur Argentìnu, stàtar sig af thvì og ausar inn tugum tùsunda ferdamanna à hverju àri med thvì ad auglỳsa sig sem “fin del mundo” eda endimork heimsins. Thessi baer er einn af thremur argentìskum baejum ì Tierra del Fuego (Eldland) sỳslu og sà sydsti, og thad sem meira er, sydsta stòra byggd ì ollum heiminum, à 54 gràdum sunnlaegrar lengdar. Adeins Puerto Williams, lìtid 2000 manna thorp à chilesku landsvaedi, liggur sunnar.

Vedurfar hèr ì Ushuaia er hàlf ìslenskt. Thà thrjà daga sem èg hef verid hèr hefur vedrid verid svipad og à vindasomum snemmsumardegi ì Sandgerdi; sterkur kaldur vindur og sòlarglaeta annars lagid til ad hlỳja manni orlìtid. Landslagid svipar hins vegar til Akureyrar; hòlar og haedir og graenar fjallshlìdar. Hèr er hàsumar thessa dagana og dagar langir og naetur stuttar, en à veturna er hèr afar kalt og nordur(sudur?)ljòs sjàst oft og tìtt.

Fòlk sem bỳr à jadarsvaedum er à margan hàtt svipad. Hèr thykir thad t.d. mòdins medal ungra karlmanna, rètt eins og ì sjàvarbyggdum vid strendur Ìslands, ad eiga hàvadasama sportbìla med ollum mogulegum og omogulegum aukahlutum og glingri og rùnta um gotur baejarins med gel ì hàrinu. Fòlk drekkur lìka àfengi ì toluverdu magni og stùlkur spranga um ì stuttum pilsum thràtt fyrir nìstandi kulda (og gore-tex galladir ùtlendingar ì gonguskòm furda sig à villimennskunni).

Eldland var sìdasta svaedid ì heiminum (fyrir utan eyjur eins og Ìsland t.d.) til ad komast ì byggd. Talid er ad fyrstu menn hafi stigid faeti à svaedid fyrir um 11.000 àrum, 10.000 àrum eftir ad talid er ad menn hafi komid yfir Bering sundid til Amerìku, th.e. thad tòk manninn um 10.000 àr ad breidast ùt frà Alaska til Tierra del Fuego. Fòlkid sem bjò hèr ì um 11.000 àr var hardgert fòlk sem, med tìmanum, nàdi ad thròa med sèr mikid kuldathol og sprangadi um thetta kalda svaedi ad mestu leyti nakid. Thad lifdi à veidum, ferdadist um à kanòum og bodadi m.a. seli og morgaesir. Thetta voru safnara- og veidimannasamfèlog og thau ferdudust um mestan part àrsins, voru oftast ekki nema nokkra daga eda orfàar vikur à hverjum stad. Eldur var mjog mikilvaegur hjà fòlkinu sem hèr bjò og tòk thad lifandi eld med sèr hvert sem thad fòr, meira ad segja hèldu thau eldi lifandi ì midjum kanòunum medan à veidum stòd. Tierra del Fuego, Eldland, nafnid sem Evròpubùar gàfu svaedinu sìdar meir, kom einmitt til vegna thess ad à kvoldin sàu their reykjarmokk og eldtungur frà vardeldum heimamanna.

Magellan og lid hans uppgotvadi thetta svaedi àrid 1520 og upp frà thvì fòru Evròpubùar ad venja komur sìnar hingad. Theim heimamonnum sem ekki voru drepnir eda dòu ùr evròpskum smitsjùkdòmum var komid fyrir i svokolludum mission-um og reyndi hvìta fòlkid, ì sinni einskaeru gòdmennsku, allt sem thad gat til ad “hjàlpa villimonnunum” og sida thau til. Theirra eigin trù, menningu og tungumàli var eytt og thau adlogud ad evròpskum sidum. Ì dag eru einungis orfàir afkomendur hinna raunverulegu heimamanna eftir og eru their allir bùnir ad blandast utanadkomandi fòlki og eru tungumàl og menning Alacaluf, Yámana, Selk`nam og Haush fòlksins, ad mestu longu gleymd. Tierra del Fuego er lìklegast “hvìtasta” sỳsla Argentìnu ì dag.

-

Er hèr àsamt bandarìskum vini mìnum ad nafni Chris og bìdum vid thess ad Ìslendingurinn og aevintỳramadurinn Pètur komi og hitti okkur en hann lendir ì Argentìnu thann 14. janùar. Saman aetlum vid thrìr ad leita uppi aevintỳri og hafa thad nàdugt vìtt og breitt um Patagònìu thangad til ì mars. Um midjan mars thurfum vid Chris ad vera komnir aftur til Buenos Aires og byrjum naestu onn ì hàskòlanum thar.

Èg held ad naestu tveir mànudir eigi eftir ad verda fràbaerir.

3 svör

Subscribe to comments with RSS.

  1. Pabbi og púkarnir á Ísó said, on janúar 11, 2009 at 2:48 pm

    Gleymdu því ekki að Bolvíkingar voru komnir með sitt “fin del mundo” slagorð fyrir mörgum árum: “Bolungarvík – endastöð sem kemur á óvart” – og mynd af krossinum á Óshlíð í hríðarbyl þar sem rétt grillti í bæinn í bakgrunninum. Þú ert rétti maðurinn til að tengja saman þessar tvær endastöðvar (!)

  2. Haukur said, on janúar 14, 2009 at 1:14 am

    Alveg rètt! Èg var naestum bùinn ad gleyma theirri fràbaeru auglýsingu.

  3. Tinna said, on janúar 23, 2009 at 10:15 pm

    Frábært að geta sprangað um allsber í kulda og byl, við ættum að reyna að þróa svona með okkur á Íslandi (hei, kannski neyðumst við til þess þegar allir lánspeningarnir verða líka búnir og við höfum ekki efni á að borga vextina).
    Habbðu annars ævinlega þökk fyrir kortið sem okkur barst í Miðtúnið um jólin. Það var skemmtilegt.


Skildu eftir svar