El Carretero

Casino Asunción

Posted in Blogroll by haukur on desember 26, 2008

Ekkert getur mögulega verið jólalegra en að eyða jóladagskvöldi í spilavíti.  Öll ljósin og músíkin minna margt á jólin, rauð teppi á gólfum og starfsfólk er jakkafataklætt.  Fólk í hátíðarskapi og allir að græða, eða svona u.þ.b.

Fjölskyldan ákvað að kíkja í spilavíti Asunción borgar á jóladagskvöld.  Aldrei hef ég komið inn í spilavíti svo það hljómaði sem spennandi jólaafþreying.  Ég fór í mitt fínasta púss, þ.e.a.s. bretti niður buxurnar, strauaði götóttu skyrtuna sem ég keypti á útimarkaði í Buenos Aires og setti bláa teyju í hárið.  Þegar inn var komið þá voru fleiri þarna en ég þorði að ýminda mér, ótrúlegur fjöldi af fólki sem telur það góða jólaafþreyingu að fara í spilavíti.  Gamlar konur með klink í bauk fyrir framan spilakassa, töff náungar með vindla fyrir framan pókerborðin og heitar skvísur gefandi spilin.  Alveg eins og í Vegas.

Ég keypti mér spilapeninga fyrir 25.000 Guaranis, gjaldmiðils Paragvæ, og skemmti mér konunglega við að tapa þeim öllum.  Sárt var að tapa en ég lágmarkaði þó skaðann með því að úða í mig ókeypis súkkulaðimolum sem lágu í skál á barborðinu.

Þetta var fínasta kvöldskemmtun og ljómandi jólaafþreying en þó ekki eitthvað sem ég sé sjálfan mig stunda af krafti í framtíðini.

25.000 guaranis jafngilda 630 íslenskum krónum.

3 svör

Subscribe to comments with RSS.

  1. Áa said, on janúar 4, 2009 at 10:12 am

    Ah fátt betra en skemmtileg ferðablogg! Bið að heilsa ba og hinum ljóshærða gringonum. Hvar er hann annars, ertu búinn að týna honum?

  2. haukur said, on janúar 8, 2009 at 9:08 pm

    Hinn ljóshaerdi gringoinn er í Rio Grande. Ég er einmitt thessa stundina staddur í Ushuaia, aetla ad kíkja í kaffi og ponnsur til hans á naestu dogum.

  3. Benni said, on janúar 9, 2009 at 9:56 am

    Á meðan þú ert í Ushuaia skaltu nefna föður minn á nafn, hann er þekktur þarna suðurfrá…


Skildu eftir svar