Tucumán
Skrifað upphaflega 23/11 með penna í dagbók.
Er kominn til Tucumán eftir stutt stopp í Cordoba. Tucumán er í suðurhluta norðurhluta Argentínu og er minnsta sýsla landsins.
——–
Ég er á gangi i miðbænum, nýmættur a svæðið, með bakpokann á bakinu, með úfið hár, skítugur og eflaust illa lyktandi, þegar maður nálgast mig. Hann var á sextugsaldri, i stuttermaskyrtu og hélt a skjalatösku.
-,,Hey þú, þekkiru son minn, Hugo Valdes, hann er svona hippi eins og þú”
-,,Nújá? Komdu sæll. Nei, það held ég ekki”
-,,Hann heldur alltaf til á Plaza Dorrego í San Telmo i Buenos Aires. Þekkiru þann stað?”
-,,Ja… ég bý nú í San Telmo, örfáum metrum frá…”
-,,Já flott, þú ættir þá að leita að honum þegar þú kemur til Buenos Aires. Hann er með mikið hár eins og þú, selur handverk”
-,,Ég kannski geri það, takk”
-,,Biður þú ekki bænirnar þínar á kvöldin? Trúir þú ekki á guð?” Segir hann og dregur upp úr vasa sínum hálsmen með Maríu Mey á og kyssir.
-,,Nee, get varla sagt það”
-,,Nú, þá verður þú að byrja a því, annað er ekki hægt. Vertu blessaður”
Áður en ég náði að kveðja undarlega manninn þá var hann rokinn i burtu. Nóg að gera.
——–
Fékk inni hjá Joaquim sem er einn af þeim fjölmörgu sem skráðir eru á síður eins og HospitalityClub.org og CouchSurfing.com. Það var notalegt að komast i heita sturtu og sofa á alvöru dýnu einu sinni eftir tveggja vikna tjaldvolk.
Er nú á leið enn lengra i nordur. Stefni á að fara á puttanum gegnum Catamarca, Salta og Jujuy og komast inn í Bólivíu einhverntíman fyrstu vikuna í desember.
Í Bólivíu er verðlag afar hagstætt og er það líklegast eitt af fáum löndum í heiminum í dag þar sem hægt er að gera sér glaðan dag með íslenskum krónum.
Vá, Haukur… Þú ert frábær penni! Skemmtilegt að ég skyldi kíkja á facebook-síðuna þína og vafra á þessa slóð út frá henni. Vona að þú hafir það gott þarna úti. Ég er sjálf flutt til Spánar, er að læra spænskuna en það gengur hægt og bítandi.
Ég á eftir að kíkja hingað inn oftar :O)
Haukur minn… þú kaupir kannski eitthvað fallegt fyrir mig í Bolivíu.
kv, Benni
hey Haukur, tha thekkiru kannski vin minn Rudy Corona.. hann er i Buenos Aires eins og thu.. verdur thar thangad til i januar.. hann er reyndar ekki svona hippi eins og thu.. hann bara er tharna
Arna: Takk.
Benni: Ég kaupi eitthvad falllegt, engar áhyggjur.
Hólmfrídur: Ég minnist thess ekki ad thekkja Rudy vin thinn. Er reyndar sjálfur ekki í BA núna. Og ég vill eiginlega ekki vidurkenna ad ég sé hippi.