El Carretero

Tjaldlíf

Posted in Blogroll by haukur on nóvember 19, 2008

 

Hlusta ber á Toots and the Maytals við lestur þessarar færslu.

——-

Jorge er 45 ára gamall, hálfur Argentínumaður og hálfur frá Syríu.  Hann er hávaxinn og grannur, dökkur yfirlitum, útitekinn og með sítt hár.  Hann átti hús, vinnu og fjölskyldu í Buenos Aires en konan hans var alltaf með leiðindi og ákvað hann á endanum að flytja út og leyfði konunni að hirða allt.  “Mujeres son locas, sólo dan problemas”, konur eru ruglaðar, eru með eintómt vesen, sagði hann og hristi hausinn.  Ég tók undir með honum og jánkaði.  “Héðan í frá verð ég einhleypur, ekkert rugl” sagði hann, greinilega bitur.  Hann hefur búið á tjaldstæðinu frá því að brotist var inn í bráðabyrgðaríbúðina hans í Rosario og því litla sem hann átti eftir skilnaðinn var stolið.  Nú er hann að byrja lífið upp á nýtt, á núlli.  Hann á einungis tjald, reiðhjól, rúmföt og fötin sem hann gengur í.  Hann handvinnur skartgripi og selur í bænum, reynir að lifa af einn dag í einu.

 

“Iceland?  Bjork!  I love Bjork!”  hrópaði Alfies Scartz upp yfir sig þegar hann komst að þjóðerni mínu.  Hann er 39 ára gamall létt klikkaður, brosmildur Úrugvæi.  Stuttur, dökkur yfirlitum með skegg og skítugustu tennur sem ég hef augum mínum litið.  Hann kvaðst elska Björk út af lífinu og vildi gjarnan kynnast henni persónulega.  Söngkonan knáa var þó ekki það eina sem hann þekkir frá íseyjunni í norðri, heldur er hann fróður um ýmislegt s.s. hið aldna Alþingi Íslendinga, víkingana og jarðfræðina.  Hann talar í belg og biðu um allt og ekkert og er mikill áhugamaður um mannúðarmál, landafræði og sögu.  Hann vann sem útvarpsvirki í Montevideo,  höfuðborg Úrugvæ, áður en hann og konan hans ákváðu að leita að ævintýrum og fóru til Brasilíu og unnu fyrir sér með því að búa til handverk og selja á ströndinni.  Eftir tvö ár vildi konan hans fara að setjast niður og lifa venjulegu lífi, en Alfies var ekki hrifinn af þeirri hugmynd og skildu þau.  Alfies vill heldur ferðast um og skrifa.  Hann hefur nefnilega skrifað 8 aktivistabækur og segist ekki hætta fyrr en umheimurinn hefur hlustað á það sem hann hefur að segja.  Hann lofaði að senda mér eintak og ég lofaði að lesa það.

 

Jorge og Alfies voru meðal nágranna minna á tjaldstæði rétt utan við Rosario hér í Argentínu þar sem ég dvaldi um tíma.  Á argentískum tjaldstæðum eru allir vinir, engu máli skiptir hvort þú ert heimilislaus argentínubúi, ljóshærður Evrópubúi á ferðalagi eða Íslendingur.  Traustið er algjört, allir eru jafningjar.

Á tjaldstæðinu var líka Hollendingurinn Stein.  Hann átti enga peninga í íslenskum bönkum og var því ekkert því til fyristöðu að okkur yrði vel til vina.

 

——————

 

Fyrri önnin við Universidad del Salvador er búin og er ég kominn í fjögura mánaða sumarfrí.  Er fluttur út úr íbúiðinni minni í Buenos Aires og er farinn á ferðalag þangað til í mars.  Set líklegast hér inn nokkur orð þegar vel liggur á.

Skildu eftir svar