Almenningssamgöngur
Samgöngukerfi Buenos Aires borgar er ódýrt, skilvirkt, gott og öruggt. Alla daga vikunnar, allan sólarhringinn er, á frekar einfaldan máta, hægt að komast milli flestra borgarhluta þessarar gríðarstóru borgar.
Jarðlestin, el Subte, teygir net sitt undir stórt svæði borgarinnar með 5 línur sem allar tengjast. Bláa línan, lína C, fer milli Constitución, sem er í suðurhluta borgarinnar, og Retiro sem er í norð-austurhlutanum. Lína A, B, D og E fara svo af C línunni í norður-, austur- og vesturátt. Í fyrstu virðist kannski eins og um flókna athöfn sé að ræða að ferðast með jarðlestinni, en eftir tvö til þrjú skipti ættu allir að vera lausir við stressið og byrjaðir að njóta ferðarinnar. Á háannartímum, kl. 8-9 og kl. 17-19, eru jarðlestirnar pakkfullar og er oft hasar að troða sér inn í yfirfulla vagnana. Utan þessa tíma er yfirleitt mjög ánægjulegt að ferðast með jarðlestinni, enda er hún lang skjótasti samskiptamátinn í Buenos Aires. Að ferðast með subte kostar 90 argentísk centavos og gengur hann frá kl. 6 á morgnanna til kl. 23.
Strætó, el collectivo, er með einhverjar 300 línur og auk þess að ganga um alla miðborgina fer hann í úthverfin og út fyrir borgina, alla leið í “Hafnarfjörð” Buenos Aires. Strætó gengur með örfárra mínútna millibili á daginn, en á kvöldin og nóttunni getur liðið allt að hálftími milli strætóa. Hann er samt áreiðanlegur og þó biðin sé stundum í lengri kantinum þá kemur hann alltaf á endanum. Strætóar Buenos Aires borgar eru yfirleitt hreinir og fínir og kostar 90 argentísk sent að ferðast innan borgarinnar. Eftir langa og erfiða kvöldstund á knæpum borgarinnar tek ég nær undantekningalaust strætó heim, en fyrir mér hljóma 90 centavos alltaf betur en 30 pesóarnir sem leigubíll annars kostar.
Á háannatímum eru strætóar, eins og jarðlestin, yfirfullir. Það þýðir hins vegar ekki að fólk þurfi að slást og ryðjast til að komast inn í vagninn, heldur eru strætóvenjur Argentínubúa óvenju fágaðar en við strætóstopp bíða allir í fallegri einfaldri röð.
Leigubílar eru á hverju strái í Buenos Aires eins og í öðrum stórborgum. Stutt leigubílaferð ætti ekki að kosta mikið meira en 10 pesóa á innan miðbæjarins en meira ef farið er t.d. til Palermo. Leigubílstjórar spila gjarnan með útlendinga sem þekkja ekki til borgarinnar, keyra hlykkjótar leiðir og gera alls kyns hringavitleysu til að lengja ferðina. Leigubílstjórar eru einnig þekktir fyrir að gefa til baka falsaða seðla svo nauðsynlegt er að grandskoða seðla sem maður fær til baka áður en maður yfirgefur bílinn.
Labb milli staða er einnig fínasta æfing og dægradvöl. Ekki er þó hægt að mæla með því eftir myrkur.
1 comment